Dr. Maack

Og lífið heldur áfram...

mánudagur, október 18, 2004

Jæja þá er jólafríið búið og ný önn í skólanum hafin
Prófin gengu allt í lagi, er samt ekkert búin að fá úr þeim.

Skrapp á djammið á laugardag í góðum fíling eftir að hafa látið ofan í mig slatta af bjór og gini. Fór á 22 og dansaði gjörsamlega af mér fæturnar!! Þvílíkur unaður að fara á djammið og fara EKKI á Hverfisbarinn. Alveg komin tími á það skal ég segja ykkur!

mánudagur, október 11, 2004

Jæja, 2 próf búin og bara eitt eftir. Mikið svakalega hlakka ég til þegar þetta er búið!! Bara þrír dagar eftir í lestri...ég verð að meika þetta!!!

Svo bara veit maður ekki alveg hvað maður á að gera af sér þegar maður verður búin í jólaprófum svona í október...skrítið...maður verður bara að leika jólasveininn í ár eða eitthvað álíka!!

Ég er á hausnum, ef eitthver vill gefa mér pening þá má hann hafa samband!!