Dr. Maack

Og lífið heldur áfram...

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Jæja, komin miðvikudagur.
Prófið búið, og viti menn...haldiði ekki bara að ég hafi náð prófinu og er orðin 2. árs læknanemi núna :-)
Annars er lítið að frétta. Endaði á djammi á föstudaginn (skamm Heiðrún) sem var mjög gaman en algjört rugl þar sem ég fór í prófið á mánudaginn og lærði þannig ekkert súper mikið um helgina! En það er ekki vandamál lengur!

� gær fór ég svo á Foo Fighters tónleikana! Magnaðir tónleikar! En það voru svona 1000 manns of margir inni í Laugardalshöllinni og það var svo ógeðslega troðið að maður var í kremju jafnvel þótt maður stæði aftast.
Ég tróð mér hins vegar fremst og endaði ein og þegar ég var alveg að kafna þarna fremst (ég er nú ekki sú hávaxnasta) voru öryggiskallar sem kipptu mér upp og ég henntist yfir hrúguna og endaði næstum því upp á sviði! Stóð svona hálfan meter frá Dave Grohl og vinkaði honum! Hvesu mikil snilld er það!

En ég á víst að vera að vinna núna svo ég held að ég komi mér aftur að verki!

fimmtudagur, ágúst 21, 2003

Jæja, föstudagur enn og aftur...og er ég að fara að djamma...enn og aftur er svarið nei!!
Ætlar þessi vitleysa aldrei að verða búin...jú mikið rétt...helduru ekki bara að henni ljúki á mánudaginn kl. 12:00! Mikið hlakka ég til svo ég segi nú ekki meira, þetta er búið að vera ósköp erfitt að halda sér við þennan lestur og ég er ekki búin að lesa næstum því jafn mikið og ég hafði planað. En ég verð bara að cross my fingers og vona að þetta dugi til.
Svo eru bara fjórir vinnudagar eftir í næstu viku, vííí :-)

Speki dagsins:
Raunveruleikinn, ímyndað afl.
Kraftur, hvaðan kemur hann.
Hann leitar að mér, leitar fast!
Tíminn, hvers virði?
Lífið hvers virði?
Já, og já!

þriðjudagur, ágúst 19, 2003

Speki dagsins: Sometimes it seems like we are living in some kind of prision and the crime is how much we hate ourselves. - Úr My So Called Life -

Jæja, þá er maður loksins farin að skilja eitthvað í þessu og farin að geta bullað eitthvað hérna á þessa síðu. Lítið markvert hjá mér í dag, ég er bara að reyna að læra fyrir þetta próf, guð hvað ég hlakka einstaklega mikið til þegar að það verður búið.
En annars bið ég ykkur bara vel að lifa.
Respect for the man in the icecreamvagn!

How are you doing?!?

sunnudagur, ágúst 17, 2003

jo jo, what´s up?